Gormánuður
nýtni og hlý máltíð í byrjun vetrar
Fyrsti vetrardagur er genginn í garð og með honum Gormánuður, fyrsti mánuður vetrar í gamla íslenska tímatalinu. Hann hefst alltaf á laugardegi, á bilinu 21. til 28. október (Gunnell og Eyja Margrét Brynjarsdóttir, 2000). Nafnið er dregið af gori, hálfmeltu innihaldi vambar sláturdýra, og í orðabók Cleasby og Vigfússonar segir að mánuðurinn sé nefndur eftir slátruninni sem fór fram til vetrarforða. Þá var matur búinn í haginn fyrir veturinn og kunnáttan að nýta allt skipti sköpum.
Margt í þessari gömlu nýtni á enn erindi við okkur. Í lífsstílslækningum er lögð áhersla á heilfæði, mat sem er sem minnst unninn og að mestu úr jurtaríkinu, ásamt fiski. Það þýðir ekki að við þurfum að kasta gömlum hefðum. Við getum horft á þær með nýjum augum.
Trefjar: það sem flest okkur vantar
Ein stærsta samantekt sem gerð hefur verið á gæðum kolvetna náði til 185 ferilrannsókna og 58 klínískra rannsókna. Hún sýndi að þau sem borðuðu mest af trefjum voru 15 til 30 prósent ólíklegri til að deyja af hjarta- og æðasjúkdómum eða fá kransæðasjúkdóm, heilablóðfall, sykursýki af tegund 2 eða ristilkrabbamein en þau sem borðuðu minnst. Ávinningurinn var mestur við 25 til 29 grömm á dag (Reynolds o.fl., 2019). Flest okkar eru langt frá því marki.
Trefjarnar eru líka fæða fyrir þarmaflóruna, bakteríurnar í meltingarveginum sem framleiða efni sem hafa áhrif á meltingu, ónæmiskerfi og bólgusvörun. Rannsóknir á tengslum þarmaflóru og líðanar eru enn ungar, en allt bendir í sömu átt: fjölbreytt fæða úr jurtaríkinu er góð fyrir þarmana.
Súpan er gott dæmi um hvernig gamla hefðin og nýja þekkingin mætast. Kjötsúpan verður enn næringarríkari ef grænmetið fær meira pláss. Prófaðu að minnka kjötið um helming og setja baunir eða linsubaunir í staðinn. Þá helst bragðið en súpan verður trefjaríkari. Ef þú vilt prófa kjötlausa útgáfu stendur súpan vel undir sér með rófum, kartöflum, gulrótum og byggi. Afgangurinn verður hádegismatur næsta dags og ekkert fer til spillis.
D-vítamín: það sem sólin gefur ekki
Á breiddargráðu Íslands myndar húðin nánast ekkert D-vítamín úr sólarljósi stóran hluta ársins. Í evrópskri rannsókn kom fram að sveiflur í D-vítamínbúskap yfir árið voru mun minni hjá Íslendingum og Norðmönnum en hjá Írum, þótt sólarljós væri mun minna hér norður frá. Skýringin var meiri inntaka D-vítamíns úr fæðu og bætiefnum (O’Neill o.fl., 2016). Það sýnir að við getum bætt upp það sem sólin gefur ekki. D-vítamín finnst í feitum fiski og eggjum, en erfitt er að fá nóg úr fæðunni einni saman yfir veturinn. Því ráðleggur Embætti landlæknis flestum að taka D-vítamín sem bætiefni.
Bættu við frekar en að taka út
Ein einföld regla sem ég held mikið upp á er að bæta við frekar en að taka út. Í stað þess að hugsa um allt sem þú ættir að hætta að borða, spurðu hvað þú gætir bætt við. Handfylli af grænmeti í pottinn. Baunir í súpuna. Fiskur einu sinni enn í vikunni.
Veldu eina máltíð í vikunni sem þú eldar frá grunni og nýtir til fulls. Eldaðu ríflega og geymdu afganginn fyrir annasaman dag.
Hvaða matarhefðir fylgdu haustinu í þinni fjölskyldu? Hverjar þeirra vilt þú halda í?
Uppskrift: kjötlaus haustsúpa
Súpa í anda gömlu kjötsúpunnar, með byggi og baunum í stað kjöts. Uppskriftin dugar fyrir 4 til 6 og tekur um 45 mínútur.
| Hráefni | Magn |
|---|---|
| Olía | 1 msk |
| Laukur | 1 stór |
| Hvítlauksrif | 2 |
| Perlubygg | 100 g |
| Vatn | 1,5 l |
| Grænmetisteningar | 2 |
| Súpujurtir, þurrkaðar | 2 msk |
| Gulrófa | ½, um 400 g |
| Kartöflur | 4 meðalstórar |
| Gulrætur | 3 |
| Hvítkál | ¼ haus |
| Hvítar baunir eða kjúklingabaunir | 1 dós, 400 g |
| Salt og pipar | eftir smekk |
- Saxaðu laukinn og hvítlaukinn og mýktu í olíunni í stórum potti í um 5 mínútur.
- Skolaðu byggið og settu það í pottinn ásamt vatni, grænmetisteningum og súpujurtum. Láttu sjóða í 15 mínútur.
- Skerðu rófu, kartöflur og gulrætur í munnbita og bættu í pottinn. Láttu sjóða í 15 mínútur.
- Skerðu hvítkálið smátt, skolaðu baunirnar og bættu hvoru tveggja í pottinn. Láttu sjóða í 10 mínútur í viðbót, eða þar til allt er mjúkt.
- Smakkaðu til með salti og pipar.
Súpan er jafnvel enn betri daginn eftir og hún geymist vel í frysti. Ef þú vilt halda í kjötið má nota helminginn af venjulegu magni og bæta baununum við.
Heimildir
- Cleasby R, Vigfússon G. An Icelandic-English Dictionary. Oxford: Clarendon Press; 1874. Uppflettiorð: gor.
- O’Neill CM, o.fl. Seasonal changes in vitamin D-effective UVB availability in Europe and associations with population serum 25-hydroxyvitamin D. Nutrients. 2016;8(9):533. https://doi.org/10.3390/nu8090533
- Reynolds A, o.fl. Carbohydrate quality and human health: a series of systematic reviews and meta-analyses. Lancet. 2019;393:434–445. https://doi.org/10.1016/S0140-6736(18)31809-9
- Terry Gunnell og Eyja Margrét Brynjarsdóttir. Hvaða mánaðanöfn voru notuð samkvæmt gamla íslenska tímatalinu og yfir hvaða tímabil náðu þau? 2000. Vísindavefurinn. https://www.visindavefur.is/svar.php?id=1132